← FORSÍÐA

GIRERD.IS

UM MIG

NÍELS THIBAUD
GIRERD

LEIKARI · LEIKSTJÓRI · LJÓSMYNDARI · FJÖLMIÐLAMAÐUR

SKROLLAÐU NIÐUR ↓
Svarthvít portrettmynd af Níels Thibaud Girerd
Níels með Olympus OM-2 filmuvél

Níels Thibaud Girerd er íslensk-franskur leikari, leikstjóri, ljósmyndari og fjölmiðlamaður. Hann lauk BA-gráðu í leiklist frá sviðslistadeild Listaháskóla Íslands árið 2021 og diplómanámi í óperustjórnun á vegum Opera Europa árið 2022.

Níels með myndavél utandyra
Níels í hlutverki með yfirvaraskegg
LEIKARINN

Frá útskrift hefur Níels tekist á við fjölbreytt hlutverk á sviði, meðal annars Birtíng í Birtíng eftir Voltaire, Peleif í Ástarseyði Bergamólíó Kroppinbaks, Smidda í Jónsmessunæturdraumi, Napóleon í Níels er Napóleon, Benoît í La bohème, Pétur Pan í Pétri Pan, Andreij í Þremur systrum og Hallgrím Pétursson í Jólunum hans Hallgríms. Hann hefur jafnframt komið reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Leikhúsverkefni
Níels að störfum í leikhúsi
LEIKSTJÓRINN

Á árunum 2015–2022 starfaði Níels sem sýningarstjóri, verkefnastjóri og aðstoðarleikstjóri við Íslensku óperuna. Sem leikstjóri hefur hann meðal annars leikstýrt endurupptökunni á óperunni Brothers eftir Daníel Bjarnason, sem meðal annars var sýnd á óperuhátíð í Búdapest sumarið 2019, Rabbi Rafmagnsheila, sem tilnefnd var til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2023, Hrafntinnu og Örlagaþráðum. Meðal annarra leikstjórnarverkefna hans eru Syngjandi í rigningunni, Mary Poppins, West Side Story, Chicago, Íslandsklukkan og Bugsy Malone, samstarfsverkefni Söngleikjadeildar Söngskólans í Reykjavík og Þjóðleikhússins.

FJÖLMIÐLAMAÐURINN

Níels hefur starfað við sjónvarp og útvarp frá árinu 2010 og komið að gerð yfir 100 þátta og innslaga fyrir íslenska fjölmiðla. Á árunum 2020–2021 leikstýrði hann Óperuminningu, 18 þátta sjónvarpsþáttaröð sem unnin var í samstarfi Íslensku óperunnar og RÚV. Árið 2025 framleiddi hann og leikstýrði, ásamt Gunnari Smára Jóhannessyni, Níels og Napóleon fyrir Ríkisútvarpið – Rás 1. Hann vinnur nú sem höfundur og framleiðandi að heimildarþáttaröðinni Bravó Wagner fyrir RÚV, sem fjallar um Richard Wagner, Bayreuth-hátíðina og 150 ára sögu hennar.

Níels við fjölmiðlastörf
Níels í kvikmynda- og sjónvarpsverkefni
Á SKJÁNUM

Níels hefur einnig leikið í sjónvarpi og kvikmyndum, meðal annars í bandarísku kvikmyndinni The Finnish Line, Dagbók lögreglunnar, Krakkaskaupinu, Hæ Gosi og Stundinni okkar, þar sem hann lék á árunum 2021–2024.

Níels í bláum klæðnaði
Níels Thibaud Girerd — lokamynd

NÍELS THIBAUD
GIRERD

REYKJAVÍK · ICELAND

← AFTUR Á FORSÍÐU